Margir hafa væntanlega heyrt rómantískar sögur um hjónaleysi um borð í farþegaskipi sem er við það að sökkva. Þau grípa tækifærið og láta skipstjórann gifta sig til að eiga von um að eyða eilífðinni saman ef svo óskemmtilega vildi til að þau lifi sjóferðina ekki af.
Þessi rómantíska aðferð til að gefa saman hjó...
Laganám á Íslandi tekur alla jafna 5 ár og er því skipt niður í þriggja ár grunnnám sem veitir BA-gráðu, og tveggja ára meistaranám. Að því loknu útskrifast stúdent með embættispróf í lögfræði og getur sótt um réttindi héraðsdómslögmanns samkvæmt skilyrðum 6.–8. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998. Um skilyrði þess að...
Langflestar þjóðir vilja tryggja þegnum sínum ákveðin grundvallarréttindi og hafa því lögleitt mannréttindaákvæði. Mannréttindi takmarka heimildir ríkisvaldsins til íhlutunar í garð borgaranna og veita þannig öryggi og réttindi í samskiptum við hið opinbera. Þau eru þó engin trygging fyrir því að stjórnvöld taki g...
Stjórnarskráin, líkt og önnur íslensk lög, gildir um alla þá sem staddir eru á íslensku yfirráðasvæði. Sum réttindi og skyldur samkvæmt lögum og stjórnarskrá eru hins vegar bundin tilteknum skilyrðum og getur íslenskt ríkisfang verið þeirra á meðal. Á það til dæmis við um kosningarétt við kosningar til Alþingis, s...
Í heild sinni var spurningin svona:
Hvaða lagalegu réttindi hefur ljósmyndari á almannafæri, til dæmis í verslunarkjörnum eða öðrum fjölförnum stöðum á Íslandi?
Í svarinu hér á eftir er gert ráð fyrir að spyrjandi eigi við rétt ljósmyndara til að taka myndir af einstaklingum en ekki bara byggingum, styttum eða s...
Ef við gerum ráð fyrir að spyrjandi eigi við að myndirnar séu af einstaklingum vegast hér á tvenns konar réttindi – annars vegar réttur myndefnisins til einkalífs og hins vegar réttindi myndatökumannsins til tjáningarfrelsis. Þessi réttindi eru varin af stjórnarskránni og Mannréttindasáttmála Evrópu, sem veitt ...
Upphafleg spurning var á þessa leið: Hver er skilgreiningin á einkabifreið? Hefur maður sömu réttindi þar eins og heima hjá sér (er maður „heima hjá sér" undir stýri)?
Bifreið er skilgreind svo í 2. gr. umferðarlaga nr. 50/1987:
a. Vélknúið ökutæki sem ekki telst torfærutæki og aðallega er ætlað til fólks- eða ...
Hinn 1. janúar 2009 tóku gildi ný lög um sakamál nr. 88/2008, og koma þau í stað laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Segir í 1. mgr. 1. gr. nýju laganna:Þau mál öll, sem handhafar ákæruvalds höfða til refsingar lögum samkvæmt, skulu sæta meðferð eftir ákvæðum laga þessara nema öðruvísi sé fyrir mælt í lög...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvaða konur voru öflugar í kvenréttindabaráttunni aðrar en Bríet Bjarnhéðinsdóttir á sínum tíma? Hvað gerðu þær til að hafa áhrif ?
Bríet Bjarnhéðinsdóttir hefur orðið áberandi í sögunni af kvenréttindabaráttunni, eðlilega þar sem hún var frumherji á svo mörgum sviðum: hún hélt...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hafa börn sjálfstæðan rétt til bólusetninga (og hugsanlega annarrar heilbrigðisþjónustu) óháð vilja foreldra?
Einfalda svarið við spurningunni er: Já, ef börnin hafa náð 16 ára aldri.
Þrátt fyrir að foreldrar fari með forsjá barna til 18 ára aldurs verða börn hér á landi sj...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Góðan dag. Má taka mig upp án míns samþykkis, hvort sem um er að ræða videó eða raddupptöku?
Um hljóðupptökur gilda tilteknar reglur sem hægt er að skoða á vef Persónuverndar. Þar segir þetta:
Einstaklingar mega almennt ekki taka upp samtöl manna á milli eða ræð...
Um heimildir til þess að gifta hjónaefni er fjallað í IV. kafla hjúskaparlaga nr. 31/1993. Þar segir í 16. gr. að stofna megi til hjúskapar fyrir presti, forstöðumanni skráðs trúfélags skv. 17. gr. sömu laga, eða borgaralegum vígslumanni. Íslenskir vígslumenn geta starfað erlendis og erlendir vígslumenn hér á land...
Uppreist æru felur í stuttu máli í sér að fá að njóta aftur réttinda sem glatast við það að fá fangelsisdóm. Sem dæmi má nefna kjörgengi til Alþingis eins og fram kemur í 4. og 5. grein laga um kosningar til Alþingis. Þar segir:Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver sá sem kosningarrétt á skv. 1. gr. og hef...
Stutt svar við þessari spurningu er einfaldlega nei!
Lengra svarið er þetta: Á Íslandi eru í gildi húsaleigulög nr. 36/1994 (hll.) og um framsal leiguréttar við sölu leiguhúsnæðis er kveðið á í 42. gr. þeirra laga, en 1.-4. mgr. 42. gr. hljóðar svo:Sala leiguhúsnæðis er ekki háð samþykki leigjanda. Leigusala er...
Í 13. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna er kveðið á um ferðafrelsi og þar segir:Frjálsir skulu menn vera ferða sinna og dvalar innan landamæra hvers ríkis.
Rétt skal mönnum vera að fara af landi burt, hvort sem er af sínu landi eða öðru, og eiga afturkvæmt til heimalands síns.
Eins og sjá má er ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!